Skrifblinda – Dysgraphia
Lesblind.is býður upp á námskeið fyrir þá sem eiga við skriftarörðugleika að etja, dysgraphia.
Davis skrifblinduleiðrétting er unnin á 5 – 8 daga námskeiði þar sem Davis ráðgjafi vinnur með einn skjólstæðing í einu. Námskeiðið er sniðið að þörfum hvers einstaklings og að loknu greiningarviðtali er lengd þess og innihald skipulagt nánar. Námskeiðið tekur styttri tíma ef viðkomandi hefur áður farið í Davis lesblinduleiðréttingu. Oft dugir lesblinduleiðréttingin ein og sér til þess að leiðrétta skriftarörðugleika.
Innifalið í námskeiðinu er þjálfun stuðningsaðila og nauðsynleg námsgögn sem nemandinn þarf til þess að vinna heimavinnuna. Námskeiðið er fyrir 8 ára og eldri.